Indesit RI 161 C Hob Brugervejledning
Advertentie
Advertentie
UPPLÝSINGAR VARÐANDI ÖRYGGI
IS
MIKILVÆGT ER AÐ LESA OG FYLGJA
LEIÐBEININGUNUM
Sækið notendahandbókina í heild á indesit .
eu http:// docs .
eða hringið í símanúmerið sem sýnt er á
ábyrgðarbæklingnum.
Áður en tækið er notað skal lesa upplýsingar um
öryggi.Geymið þær til að geta leitað í þær síðar meir.
Ávallt skal fylgja öryggisleiðbeiningunum sem er að finna í þessum leiðbeiningum og á tækinu sjálfu.
Framleiðandinn afsalar sér allri ábyrgð vegna vanrækslu á eftirfylgni leiðbeininganna, rangrar notkunar tækisins eða rangrar stillingar á stjórnhnöppum þess.
Ungabörn skulu ekki koma nærri helluborðinu
(0-3 ára). Ung börn (3-8 ára) skulu ekki koma nærri helluborðinu nema undir stöðugu eftirliti fullorðinna.
Börn sem eru eldri en 8 ára og einstaklingar með skerta líkamlega eða andlega hæfni, skerta starfsemi skynfæra eða sem skortir reynslu og kunnáttu mega aðeins nota tækið undir eftirliti eða eftir að hafa fengið leiðbeiningar um örugga notkun og hættur sem fylgja notkun. Börn skulu ekki leika sér með tækið. Börn skulu ekki sjá um hreinsun og viðhald tækisins nema undir eftirliti fullorðinna.
VIÐVÖRUN: Tækið og aðgengilegir hlutar þess hitna við notkun. Gætið þess að snerta ekki heita hluta tækisins.Börn undir 8 ára aldri skulu ekki koma nærri tækinu nema undir stöðugu eftirliti fullorðinna.
VIÐVÖRUN: Ef yfirborð helluborðsins er sprungið skal ekki nota það vegna hættu á raflosti.
VIÐVÖRUN: Eldhætta: geymið hluti ekki á hellum.
VARÚÐ: Nauðsynlegt er að fylgjast með eldun.
Hafa skal stöðugt eftirlit með stuttri eldun.
VIÐVÖRUN: Eftirlitslaus eldun á helluborði með fitu eða olíu getur verið hættuleg vegna eldhættu.
Reynið ALDREI að slökkva eld með vatni: þess í stað skal slökkva á tækinu og hylja eldinn, t.d. með pottloki eða eldteppi.
Notið helluborðið ekki sem vinnuyfirborð eða borð.Haldið fatnaði og öðrum eldfimum efnum fjarri helluborðinu þar til allir íhlutir þess hafa kólnað fullkomlega vegna eldhættu.
Slökkvið á helluborðinu eftir notkun með stjórnhnöppunum og treystið ekki á pottaskynjarann.
LEYFILEG NOTKUN
VARÚÐ: Tækið er ekki ætlað til notkunar með ytri rofa, svo sem tímastilli, eða aðgreindu fjarstýringarkerfi.
Þetta tæki er ætlað til notkunar á heimilum og á
álíka stöðum, s.s.: í eldhúsi starfsfólks í verslunum, á skrifstofum og öðrum vinnustöðum; á sveitabæjum; af hótel- og mótelgestum, á gistiheimilum og öðrum gististöðum.
Engin önnur notkun er leyfileg (t.d. í kyndiklefum).
Tækið er ekki til notkunar í atvinnuiðnaði.Notið tækið ekki utandyra.
UPPSETNING
Nauðsynlegt er að í það minnsta tveir aðilar meðhöndli og setji tækið upp vegna hættu á meiðslum.
Notið hlífðarhanska til að afpakka og setja tækið upp vegna skurðhættu.
Þjálfaður tæknimaður eingöngu má sjá um uppsetningu, þ.m.t. vatnsveitu (ef við á), raftengingar og viðgerðir. Gerið ekki við eða skiptið um hlut í tækinu nema slíkt sé sérstaklega tekið fram í notandahandbók.
Haldið börnum fjarri uppsetningarstað. Eftir að helluborðið hefur verið tekið úr umbúðunum skal tryggja að það hafi ekki skemmst í flutningi. Í tilfellum
þar sem vandamál koma upp skal hafa samband við söluaðila eða þjónustudeild. Eftir að helluborðið hefur verið sett upp skal geyma pökkunarúrgang (plast, frauðplast o.s.frv.) fjarri börnum vegna köfnunarhættu.
Áður en uppsetning á sér stað verður að tryggja að helluborðið sé ekki tengt við rafveitu vegna hættu á raflosti. Á meðan uppsetning á sér stað skal tryggja að helluborðið skemmi ekki rafsnúrur vegna eldhættu eða hættu á raflosti. Setjið helluborðið aðeins í gang eftir að uppsetningu er fullkomlega lokið.
Ljúkið við að saga úr innréttingunni áður en helluborðið er sett í og fjarlægið allt sag og viðurspæni.
Ef helluborðið er ekki sett fyrir ofan ofn skal setja aðgreiningarplötu (fylgir ekki með) í hólfið fyrir neðan helluborðið.
VIÐVARANIR UM RAFMAGN
Nauðsynlegt er að hægt sé að aftengja helluborðið með því að taka það úr sambandi ef innstungan er aðgengileg, eða með fjölskauta rofa sem er fyrir ofan klóna í samræmi við raftengingarreglur. Einnig er nauðsynlegt að jarðtengja helluborðið í samræmi við landsbundna staðla um rafmagnsöryggi.
Notið ekki framlengingarsnúrur, fjöltengi eða millistykki.Rafrænir íhlutir mega ekki vera aðgengilegri fyrir notanda eftir uppsetningu.Notaðu helluborðið ekki blaut(ur) eða berfætt(ur).Notið helluborðið ekki ef rafmagnssnúra þess eða kló er skemmd, ef helluborðið virkar ekki sem skyldi, hefur skemmst eða verið misst í gólfið.
Ef rafmagnssnúran er skemmd skal skipta henni
út fyrir sömu rafmagnssnúru frá framleiðanda,
þjónustuaðila hans eða öðrum þjálfuðum einstaklingi til að koma í veg fyrir hættu á raflosti.
HREINSUN OG VIÐHALD
VIÐVÖRUN: Tryggið að slökkt sé á helluborðinu og að það hafi verið aftengt frá aflgjafa áður en viðhald er gert; notið aldrei gufuhreinsibúnað vegna hættu á raflosti.
Notið ekki slípandi eða tærandi efni, hreinsiefni með klóri eða pottaskrúbbur.
FÖRGUN PÖKKUNAREFNA
Pökkunarefnið er 100% endurvinnanlegt og er merkt með endurvinnslutákninu .
Mismunandi hlutum umbúðanna skal farga á ábyrgan hátt og í samræmi við staðarbundnar reglugerðir sem eiga við um förgun úrgangs.
FÖRGUN HEIMILISTÆKJA
Þetta raftæki er framleitt úr endurvinnanlegum og endurnýtanlegum efnum. Fargið því í samræmi við gildandi reglugerðir um förgun úrgangs.
Nánari upplýsingar um meðhöndlun, endurnýjun og endurvinnslu rafknúinna heimilistækja má fá hjá yfirvöldum, úrgangssöfnunarþjónustu heimilisúrgangs eða versluninni sem tækið var keypt í. Þetta tæki er merkt í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins um rafrænan úrgang
2012/19/EB, (WEEE).
Með því að tryggja að tækinu sé fargað á réttan hátt aðstoðar þú við að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar á umhverfi og heilsu.
Táknið á tækinu eða meðfylgjandi gögnum gefur til kynna að tækið skal ekki telja sem heimilisúrgang og að velja skuli viðeigandi sorpstöð til að endurvinna rafbúnað.
ÁBENDINGAR UM ORKUSPARNAÐ
Nýtið afgangshita helluborðsins eins vel og hægt er með því að slökkva á helluborðinu nokkrum mínútum áður en eldun lýkur.
Botn pottsins eða pönnunnar skal hylja helluna til fulls; ílát sem er minna en hellan veldur orkueyðslu.
Lokið pottum og pönnum með þéttum lokum á meðan eldun stendur yfir og notið eins lítið vatn og hægt er.Eldun án loks eykur mjög orkunotkun.
Notið eingöngu flatbotna potta og pönnur.
SAMRÆMISYFIRLÝSING
Þetta tæki uppfyllir Ecodesign kröfur sem teknar eru fram í
Evrópureglugerð nr. 66/2014, í samræmi við evrópska staðalinn
EN 60350-2.
IS
UPPSETNING
• Setja skal helluborðið inn í vinnuborð sem er milli 20 mm og 50 mm djúpt.
• Ekkert má komast á milli helluborðsins og ofnsins (þverbrautir, festingar o.s.frv.).
• Fjarlægðin frá neðri hluta keramíkhelluborðsins og plötunnar eða aðgreiningarplötunnar á að vera í það minnsta 20 mm.
• Ef helluborðið á að vera við hliðina á skápaeiningu skal hafa a.m.k. 100 mm bil á milli brúnar helluborðsins og hliðar skápaeiningarinnar.
• Fyrir mælivíddir og uppsetningu sjá myndina í þessari málsgrein.
• Halda verður lágmarksfjarlægð milli helluborðsins og gufugleypisins fyrir ofan það. Vinsamlegast
min. 20 mm sjáið notkunarhandbók gufugleypisins fyrir meiri upplýsingar.
• Setjið meðfylgjandi þétti á helluborðið (nema að það hafi þegar verið sett á), eftir að hafa hreinsað yfirborð þess.
• Setjið helluborðið ekki upp nærri uppþvottavél eða þvottavél til að rafrásir komist ekki í snertingu við gufu eða raka þar sem þær gætu skemmst.
• Ef ofn er settur upp fyrir neðan helluborðið skal tryggja að hann sé búinn kælikerfi. Ef hitastig rafrásanna fer umfram leyfilegan hámarkshita slökknar á helluborðinu sjálfkrafa. Ef það gerist skal bíða í nokkrar mínútur þar til hitastig rafrásanna kælist nógu mikið til að hægt sé að kveikja
á helluborðinu aftur.
STAÐSETNING HELLUBORÐSINS
Eftir tengingu við rafmagn (sjá kaflann “Tenging við rafmagn”). Staðsetjið hverja festiklemmu í þar til gerðar raufar á hliðum helluborðsins eins og sýnt er á myndinni. Ýtið síðan helluborðinu inn í útskorna svæðið og athugið hvort glerið sé flatt og samsíða vinnuborðinu. Festiklemmurnar eru hannaðar fyrir vinnuborð úr öllum tegundum efna (við, marmara, o.s.frv.).
1
4x
2
MÆLIVÍDDIR OG FJARLÆGÐIR SEM ÞARF AÐ HALDA i
L
Min.10 cm
Min. 40 cm
Min. 7 cm
580 X 510 mm
580 mm
482 mm
STANDARD UPPSETNING
0
560 mm
R = Min. 6,5 mm
Max. 8 mm
Min. 70 mm
510 mm
552 mm
INNFELLDRAR UPPSETNING
Min. 70 mm
0
583 mm
R = 11,5 mm
R = Min. 6,5 mm
0
490 mm min 20 mm
6 mm
TENGING VIÐ RAFMAGN
Tengja þarf allar raftengingar áður en tækið er tengt við rafveitu.
Uppsetning verður að vera framkvæmd af hæfum aðila sem þekkir núgildandi öryggis og uppsetningarreglur. Sérstaklega skal gæta þess að uppsetning sé gerð í samræmi við reglur staðbundinnar rafveitustofnunar.
Vertu viss um að rafspennan, sem tiltekin er á gagnaplötunni sem staðsett er neðan á tækinu, sé sama og heimilisins.
Samkvæmt reglugerðum þarf tækið að vera jarðtengt: notið eingöngu rafleiðara (þ.m.t. jarðleiðara) í hentugri stærð.
TENGING VIÐ TENGIKLEMMURÖÐ
Fyrir tengingu við rafmagn, notið H05RR-F kapal eins og tilgreint er í töflunni að neðan.
SÄHKÖJÄNNITE
LEIÐSLUR
MAGN x STÆRÐIR
3 x 4 mm 2
B
A
220-240V ~ +
230-240V ~ + 3 x 4 mm 2 (Aðeins Ástralía)
220-240V 3~ + 4 x 1,5 mm 2
380-415V 3N~ +
5 x 1,5 mm 2
380-425V 2N~ +
4 x 1,5 mm 2
Tækið verður að vera tengt við rafveitu með altækum aftengingarrofa sem hefur í það minnsta 3 mm snertibil.
ATHUGIÐ: rafveitusnúra verður að vera nógu löng til að hægt sé að fjarlægja helluborðið af vinnuborðinu og hana verður að staðsetja þannig að komið sé í veg fyrir skemmdir eða ofhitnun vegna snertingar við grunneininguna.
ATHUGIÐ: gula/græna jarðsnúran verður að vera tengd við skautið sem ber táknið og hún verður að vera lengri en hinar snúrurnar.
• Fjarlægið u.þ.b. 70 mm af slíðri af rafveitusnúrunni (B) .
• Skerið u.þ.b. 10 mm af slíðri af snúrunum. Setjið svo rafveitusnúruna í klemmuna og tengið snúrurnar við tengikubbinn eins og greint er frá á tengingarmyndinni sem er nálægt tengikubbnum sjálfum.
• Festið rafveitusnúruna (B) með klemmunni.
• Lokið tengikubbnum með hlífinni (A) og festið hana með meðfylgjandi skrúfu.
• Eftir raftengingu helluborðsins skal festa það við borðið og krækja því í stoðfjaðrirnar eins og sýnt er á myndinni.
LÝSING VÖRU
145 mm
210 mm
145 mm
180 mm
IS
STJÓRNBORÐ
C
D
A
B
Kveikt/slökkt
Val á eldunarsvæði og tímastillir
C-E Að auka og minnka hita
D Hnappalás
B
A
E
LÝSING VÖRU
Þegar helluborðið er fyrst sett upp mun stjórnborðið framkvæma virknipróf í um 1 sekúndu og eftir það verður eiginleikinn „Hnappalás“ virkur sjálfkrafa.
Til að slökkva á eiginleikanum skal ýta á hnappinn " D " og halda honum niðri. Hljóðmerki mun heyrast og það slökknar á viðeigandi ljósi.
ATHUGIÐ: Ef eiginleikinn fer aftur í gang skal endurtaka ofangreind skref.
DAGLEG NOTKUN
AÐ KVEIKJA/SLÖKKVA Á HELLLUBORÐINU
Til að kveikja á helluborðinu skal halda hnappinum “A” niðri í um 2 sekúndur. Skjáir allra hellanna sýna “0” . Ef ekkert eldunarsvæði er sett
í gang innan 20 sekúndna mun slökkna sjálfkrafa á helluborðinu vegna
öryggisráðstafana.
KVEIKJA Á OG STILLA ELDISSTÖÐVARNAR
Ýtið á einn hnappanna “B” sem á við um eldunarsvæðið sem á að nota.
Veljið hitastillingu með hnöppunum “E” eða “C” . Hinar eldunarstillingarnar eru teknar fram með tölunum 1 til 9. Ýtið á hnappana “+/ afturkalla allar stillingar.
− “ samtímis til að
Ef ýtt er á hnappinn “+” þegar hitastilling er á 9 fer “Booster” eiginleikinn í gang og stafurinn “A” birtist á skjánum.
MIKILVÆGT: stjórnhnappurinn verður óvirkur 10 sekúndum eftir að búið er að velja hitastillingu.
Til að breyta hitastillingu skal fyrst ýta á hnappinn “B” aftur og breyta svo stillingunni með hnöppum “E” eða “C” .
TIMER
Til að setja tímastillinn í gang skal velja eldunarsvæði og aflstillingu og
ýta svo á hnapp eldunarsvæðisins aftur. Lítill ljóspunktur mun kvikna
á skjá eldunarsvæðisins sem tímastillirinn er virkur fyrir. Stafirnir “00” blikka á skjánum tveimur. Ýtið á hnappana “E” eða “C” til að stilla tímann frá 1 upp í 99 mínútur.
MIKILVÆGT: eftir 10 sekúndur munu aflstillingar hinna eldunarsvæðanna birtast á skjám tímamælanna.
Til að sjá eftirstandandi tíma skal ýta tvisvar sinnum á hnapp eldunarsvæðisins sem tímastillirinn er virkur fyrir.
HNAPPALÁS
Kveikt er á Hnappalás með því að halda hnappi “D” niðri þar til ljóspunktur kviknar fyrir ofan hnappinn. Hnappalásinn læsir öllum hnöppum helluborðsins, fyrir utan hnappinn til að kveikja og slökkva á helluborðinu “A” . Hnappalásinn helst virkur þó svo að slökkt ha verið á helluborðinu og kveikt á því aftur og hann er hægt að gera óvirkan með
því að ýta á hnapp “D” aftur þar til ljóspunkturinn slökknar á ný.
GAUMVÍSIR AFGANGSHITA
Þegar slökkt er á helluborðinu, helst gaumvísir afgangshita “H” virkur eða blikkar til skiptis með “0” þar til hiti helluborðsins er kominn innan
öryggismarka.
MIKILVÆGT: Meðal öryggsieiginleika helluborðsins má nefna sjálfvirkan eiginleika sem slekkur á helluborðinu. Við langvarandi notkun sömu hitastillingar slökknar sjálfkrafa á eldunarsvæðinu (til dæmis, eftir um 1 klst. við hæstu hitastillinguna, slökknar á helluborðinu).
MIKILVÆGT: Til að forðast varanlegar skemmdir á helluborðinu:
• notið ekki potta með botni sem er ekki flatur;
• notið ekki málmpotta með glerungshúðaðan botn;
• setjið ekki heita potta/pönnur yfir stjórnborðið.
VIÐHALD OG HREINSUN
Takið ofninn úr sambandi við rafmagn.
• Notið ekki gufuhreinsibúnað.
• Notið ekki slípisvampa eða grófa svampa þar sem þeir gætu skemmt glerið.
• Eftir hverja notkun skal hreinsa helluborðið (þegar það hefur kólnað) til að hreinsa bletti og leifar matarafganga.
• Sykur eða mjög sæt matvæli geta skemmt helluborðið og þau skal fjarlægja samstundis.
• Salt, sykur og sandur geta rispað yfirborð helluborðsins.
• Notið mjúkan klút, ídrægan eldhúspappír eða sérstakt hreinsiefni fyrir helluborð (fylgið leiðbeiningum framleiðanda eftir).
• Vökvaslettur á eldunarsvæðum geta valdið því að pottar hreyfist til eða titri.
• Eftir að hafa hreinsað helluborðið skal þurrka það rækilega.
ÚRRÆÐALEIT
Ef helluborðið virkar ekki rétt, áður en hringt er í viðhaldsþjónustuna, athugið bilanaleiðbeiningarnar til að finna hvert vandamálið er.
• Lesið og farið eftir leiðbeiningunum sem gefnar eru í hlutanum
“Dagleg notkun”.
• Athugið hvort slökkt hafi verið á rafveitu.
• Þurrkið helluborðið vandlega eftir að það er þrifið.
• Ef eldunarsvæði var valið og “F” eða “ER” birtist á skjánum ásamt tölgildi skal hafa samband við söluþjónustu og láta vita af vandanum
(fyrir utan skilaboðin “F03” eða “ER03” sem gefa til kynna
ósamkvæma hreinsun stjórnskjásins. Til að leysa úr vandanum skal fylgja leiðbeiningunum í hlutanum “Viðhald og hreinsun“.).
• Ef helluborðið virkar ekki eftir að hafa verið mikið notað er innri hiti
þess of hár. Bíðið í nokkrar mínútur þar til helluborðið kólnar.
f bilunin er viðvarandi eftir að hafa athugað ofangreind atriði skal hafa samband við næstu söluþjónustu.
SÖLUÞJÓNUSTA
Til að fá frekari aðstoð skaltu skrá vöruna á www . indesit . com/register .
ÁÐUR EN HRINGT ER Í SÖLUÞJÓNUSTU:
1. Athugið hvort hægt sé að leysa úr vandanum með aðstoð
ábendinganna í kaflanum ÚRRÆÐALEIT .
2. Slökkvið á tækinu og kveikið á því aftur til að athuga hvort bilunin sé viðvarandi.
• þjónustunúmer (númerið er á eftir orðinu Service á merkjaplötunni).
Þjónustunúmerið má einnig finna í ábyrgðarbæklingi;
• Fullt heimilisfang;
• Símanúmer.
EF BILUNIN ER ENN TIL STAÐAR EFTIR AÐ HAFA GERT OFANGREINDAR
ATHUGANIR SKAL HAFA SAMBAND VIÐ ÞÁ SÖLUÞJÓNUSTU SEM
NÆST ÞÉR ER.
Til að fá aðstoð skal hringja í númerið sem tekið er fram í ábyrgðarbæklingi eða fylgja leiðbeiningunum á vefsvæðinu www . indesit . com .
Ef viðgerðir eru nauðsynlegar skal hafa samband við vottaða söluþjónustu (til að tryggja að upprunalegir varahlutir séu notaðir og að viðgerðir séu framkvæmdar á réttan hátt).
Þegar hringt er í söluþjónustu viðskiptavina skal ávallt gefa upp:
• stutta lýsingu á biluninni;
• tegund og nákvæma gerð tækisins;
Made in X
Type: XXX
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
XXXXXXXXXXXXXXX
Mod.: XXX
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
01 XXXX XXX XXXXX
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
XX XXXX XXXXX
400011303309
Downloaden
Advertentie
Belangrijkste functies
Black Built-in
4 zone(s) Glass-ceramic Ceramic
Timer Residual heat indicator
Control type: Touch